Hamar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Þessi grein fjallar um verkfærið hamar. Einnig er til mannsnafnið Hamar og orðið getur einnig þýtt klettabelti.
Hamar er áhald sem notað er til að reka nagla í tré eða önnur efni til að festa saman fleiri en einn hlut. Einnig eru hamrar notaðir til ýmissa annarra hluta, svo sem að draga út nagla, brjóta hluti, ná hlutum í sundur eða festa þá saman. Hamrar eru með algengustu og fjölhæfustu verkfærum.