Charles de Gaulle
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Charles André Joseph Marie de Gaulle (22. nóvember 1890 - 9. nóvember 1970), sem í heimalandi sínu, Frakklandi, var iðulega kallaður général de Gaulle, var marskálkur og stjórnmálamaður. Hann leiddi hið frjálsa Frakkland í seinni heimsstyrjöldinni og var í forustu ríkistjórnarinnar 1944-1946. Leitað var til hans um myndun ríkisstjórnar 1958. Hann vann að gerð nýrrar stjórnarskrár, stjórnarskrá fimmta lýðveldisins, og varð fyrsti forseti fimmta lýðveldisins 1958-1969. Stjórnmálaskoðanir hans eru þekktar sem gaullismi og hafa verið áberandi í frönskum stjórnmálum.
Efnisyfirlit |
[breyta] Fyrstu sporin
De Gaulle útskrifaðist frá École Spéciale Militaire de Saint-Cyr (Franska herskólanum) árið 1912. Hann særðist alvarlega í orustunni við Verdun 1916, var skilinn eftir meðal fallinna félaga og var tekinn höndum af Þjóðverjum. Hann gerði fimm misheppnaðar tilraunir til að flýja úr fangabúðunum. Að lokinni fyrri heimsstyrjöldinni var hann sjálfboðaliði í franskri herdeild sem fór til Póllands til að berjast við Sovíetmenn 1919-1920. Honum hlotnaðist virðingarmesta viðurkenning pólska hersins, Virtuti Militari og gerðist Major í pólska hernum og honum bauðst frekari ferill innan pólska hersins en hann sneri heim, hugfanginn af notkun skriðdreka í hernaði. Hann skrifaði um hugmyndir sínar um heri framtíðarinnar en skoðanir hans féllu ekki í kramið hjá yfirmönnum franska hersins.
[breyta] Seinni heimsstyrjöldin
Þegar Þjóðverjar sóttu fram í seinni heimsstyrjöldinni og höfðu komist hjá Sedan 15. maí 1940 framhjá helstu varnarlínu Frakka, var de Gaulle gerður að yfirmanni innan hersins. 28. maí hindraði de Gaulle framrás Þjóðverja og forsætisráðherra Frakklands Paul Reynaud gerði de Gaulle að marskálk. 16. júní kom hann til Bordeux frá London eftir að hafa reynt að semja við Winston Churchill og bresk stjórnvöld með um samstarf í baráttunni við Þjóðverja og frétti það að Philippe Pétain leiddi nú stjórn Frakka og leitaði eftir því við Þjóðverja að fá vopnahlé. Samdægurs ákvað hann að hann myndi ekki líða niðurlægingu Frakka með uppgjöf. Hann sneri því aftur til London stofnaði og stýrði hreyfingunni Frjálst Frakkland á meðan á stríðinu stóð frá London fram í maí 1943 þegar hann flutti aðsetur sitt til Alsír. Við frelsun Parísar 25. ágúst 1944 kom hann sér fyrir á nýjan leik á skrifstofu Stríðs ráðuneytisins til að framlengja sögu þriðja lýðveldinsins og lýsa yfir ólögmæti Vichy stjórnarinnar. Frá því starfaði hann sem forseti en sagði af sér 20. janúar 1946 vegna ósættis um drög að stjórnarskrá fyrir fjórða lýðveldið.
[breyta] Fjórða lýðveldið
Í apríl 1947 stofnaði de Gaulle Rassemblement du Peuple Français til að hafa áhrif á frönsk stjórnmál en án árangurs. De Gaulle lét af afskiptum sínum af stjórnmálum 1953 en RPF starfaði til 1955.
Stjórnmálaástandið í Frakklandi var óstöðugt á tíma fjórða lýðveldisins. Ófarir í Indókína og vanfærni til að leysa spurningar sem komu upp vegna Alsírs hristu upp í stjórnmálum Frakklands.
Í óeirðum í Alsír í maí 1958 hrópaði Raoul Salan „Lifi de Gaulle“ af svölum stjórnarbyggingarinnar í Alsír, tveimur dögum síðar 17. maí sagðist de Gaulle reiðubúinn til að taka við stjórnartaumunum í lýðveldinu. Óttast var að í yfirlýsingu de Gaulle fælist aðkoma hersins; de Gaulle leiðrétti þann miskilning.
Að kommúnistum og François Mitterrand slepptum sættust stjórnmálaleiðtogar á að styðja endurkomu de Gaulle í stjórnmálin. De Gaulle sagði stjórnarskrá fjórða lýðveldisins ástæðu veikrar stöðu Frakklands. Frá 1. júní 1958 varð de Gaulle leiðtogi og fékk neyðarvald til hálfs árs frá franska þinginu samkvæmt hans eigin ósk.
Í þjóðaratkvæðagreiðslu 28. september 1958 samþykktu 79,2% kjósenda nýja stjórnarskrá fimmta lýðveldisins. Nýlendur Frakka að Gíneu undanskilinni samþykktu stjórnarskránna fremur en að þyggja sjálfstæði samstundis. Gínea varð því fyrsta fransk-afríska nýlendan til að hljóta sjálfstæði. Alsír var ekki nýlenda, heldur hluti Frakklands.
[breyta] Fimmta lýðveldið
Í nóvember 1958, hlaut de Gaulle og stuðningsmenn hans (upphaflega sem Union pour la Nouvelle République-Union Démocratique du Travail, síðan sem Union des Démocrates pour la Vème République og loks Union des Démocrates pour la République (Samband lýðræðissinna í lýðveldinu)) rúman meirihluta þingsæta og 78% þingmanna kusu de Gaulle forseta. Hann sór embættiseið í janúar 1959.
Hann tók á efnahagsmálum með myntbreytingu, þar sem nýi fránkinn jafngilti 100 gömlum. Hann stóð andspænis bæðiBandaríkjunum og Sovíetríkjunum í viðleitni sinni til að styrkja stöðu frjáls Frakklands með eigin kjarnorkuvopnum. Hann var stuðningsmaður frjálsrar Evrópu og kom á fót fransk-þýsku samstarfi sem hornstein Efnahagsbandalagi Evrópu (síðar Evrópusambandið) með fyrstu opinberu heimsók fransks þjóphöfðingja til Þýskalands frá tímum Napóleóns.
Í janúar 1963 neitaði hann Bretum um aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu með tilvísun til trúar sinnar á því að Bretar sættu sig ekki við reglur bandalagsins og að Bretar kysu heldur að starfa með bandamönnum sínum í vestri, Bandaríkjunum og Samveldislöndunum.
De Gaulle sættist á hugmyndina um sjálfstæði Alsír þar sem hann taldi að þótt stríðið í Alsír væri sigranlegt þá væri það ekki verjandi á alþjóðavettvangi. Hann kom á vopnahléi í Alsír í mars 1962 og þjóðaratkvæðagreiðsla þar leiddi til sjálfstæðis í júlí 1962.
De Gaulle reyndi í september 1962 að breyta stjórnarskránni á þá lund að forseti væri kjörinn í beinni kosningu en þingið hafnaði því, við svo búið leysti de Gaulle þingið upp og boðaði til kosninga hvar Gaulistar juku meirihluta sinn á þingi. Georges Pompidou tók við embætti forsætisráðherra við afsögn Michel Debré vegna loka Alsírs-málsins.
Að Alsír-málinu loknu, einbeitti de Gaulle sér að umbótum og þróun fransks efnahags og að styrkja sjálfstæða utanríkisstefnu og stöðu Frakklands í alþjóðasamfélaginu.
Í janúar 1964 viðurkenndi de Gaulle opinberlega Alþýðulýðveldið Kína í andstöðu við vilja bandarískra stjórnvalda. Frá 1964 fram yfir 1990 var landsframleiðsla Frakka meiri en landsframleiðsla Breta. 1965 sendu Frakkar gervitungl á sporbraut umhverfis jörðina og voru þeir þriðja þjóðin til þess á eftir Sovíetmönnum og Bandaríkjamönnum. Í desember sigraði de Gaulle François Mitterrand í seinni umferð forsetakonsinga. Í febrúar 1966 drógu Frakkar sig út úr sameiginlegri herstjórn NATO. Í september 1966 mótmælti de Gaulle þátttöku Bandaríkjamanna í Víetnamstríðinu. Hann sagði heimkvaðningu Bandaríkjamanna einu leiðina til friðar. Í júní 1967 fordæmdi hann hernám Ísraelsmanna á vesturbakkanum og á Gaza ströndinni. Frá 1967 til 1970 studdi de Gaulle stjórnvöld í Biafra í baráttu þeirra við að fá sjálfstæði frá Nigeríu. Í desember 1967 neitaði hann Bretum um aðild að Efnahagsbandalaginu öðru sinni. 1968 sprengdu Frakkar kjarnorkusprengju í eyðimörkinni í Alsír og urðu þar með fjórða kjarnorkuveldið.
Þó kosningar væru frjálsar stýrði ríkið sjónvarps- og útvarpsrásum, í hefðbundu samfélagi hvar fréttamenn jafnvel sögðu það sem þeir vildu að væru fréttir risu námsmenn upp og mótmæltu kröftuglega í maí 1968. De Gaulle bauðst til þess að sættast á einhverjar af þeim kröfum sem mótmælendurnir settu fram. Hann leysti upp þingið og Gaulistar unnu 358 af 487 þingsætum, í júní kosningum 1968 hvar Gaulistar sögðu hinn möguleikann vera byltingu, jafnvel borgarastríð. Í júlí 1967 setti de Gaulle Maurice Couve de Murville í embætti forsætisráðherra.
1969 féllu hugmyndir hans um endurskipulagningu Öldungadeildar franska þingsins í grýttan jarðveg, því sagði de Gaulle af sér 28. apríl 1969 og Georges Pompidou tók við forseta embættinu.
[breyta] Einkalíf og andlát
7. apríl 1921 kvæntist de Gaulle Yvonne Vendroux og átti hann með henni þrjú börn: Pilippe f. 1921, Elísabetu f. 1924 og Önnu f. 1928. Hann lést skyndilega á Colombey-les-deux-Églises þar sem hann ritaði minningar sínar. Síðasta ósk hans var sú að verða grafinn í Colombey, og að engir stjórnmálamenn skyldu fylgja honum til grafar, einungis félagar hans úr frelsuninni. Þjóðhöfðingjar sóttu minningarathöfn í Notre Dame á meðan útförinni stóð. Hann var það fátækur við andlátið að fjölskyldan neyddist til að selja sveitasetrið, sem nú hýsir Charles de Gaulle-Safnið.
[breyta] Tilvitnanir
- „Oui, c'est l'Europe, depuis l'Atlantique jusqu'à l'Oural, c'est toute l'Europe, qui décidera du destin du monde.“ - Já það er Evrópa, frá Atlantshafinu að Úralfjöllum, það er Evrópa, það er öll Evrópa sem ákvarðar örlög veraldarinnar. Strasborg 23. nóvember 1959.
- „Vive le Québec Libre!“ - Lifi frjálst Québec Montreal 24. júlí 1967.
[breyta] Heimild
- Greinin „Charles de Gaulle“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 31. janúar 2006.
[breyta] Tenglar