Alcatraz
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hnit: 37°49′35″ N 122°25′21″ V
Alcatraz (eða Alkatraseyja) (enska: Alcatraz Island) er eyja í San Francisco flóa í San Francisco í Bandaríkjunum. Hún var áður notuð sem virki af hernum og sem hámarksöryggisfangelsi en er núna í umsjá National Park Service sem hluti af Golden Gate National Recreation Area og er opin fyrir ferðamenn. Nafn eyjunnar er komið af arabíska orðinu fyrir fuglategundina súlu í gegnum spænsku. Á eyjunni er elsti viti á vesturströnd Bandaríkjanna.