Vilhjálmur Vilhjálmsson - Hún hring minn ber
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hún hring minn ber | |
Gerð | SG - 540 |
Flytjandi | Vilhjálmur Vilhjálmsson |
Gefin út | 1969 |
Tónlistarstefna | Dægurlög |
Útgáfufyrirtæki | SG - hljómplötur |
Hún hring minn ber er 45 snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1969. Á henni flytur Vilhjálmur Vilhjálmsson tvö lög.
[breyta] Lagalisti
- Hún hring minn ber - Lag - texti: B. Bryant - Baldur Pálmason
- Árið 2012 - Lag - texti: Buck Owens - Magnús Ingimarsson/Ómar Ragnarsson
[breyta] Árið 2012
- Gömlu dagana gefðu mér, þá gat ég verið einn með þér,
- nú tæknin geggjuð orðin er gömlu dagana gefðu mér.
- Mig dreymdi að væri komið árið 2012
- þeir tunglið höfðu malbikað og steypt í hólf og gólf.
- Já veröldin var skrýtin það var allt orðið breytt
- því vélar unnu störfin og enginn gerði neitt.
- Og ekki hafði neitt að gera útvarpsstjóri vor,
- því yfirmaður hans var lítill vasa transistor.
- Og þingmennirnir okkar voru ei með fulle femm,
- því forsætisráðherrann var gamall IBM
- Gömlu dagana.....
- Ég álpaðist á bíó þar með ungri stúlkukind,
- en ekki hélt ég út að horfa á cowboy röntgen mynd.
- Ég dapur fór á barinn og um double bað af stút,
- en er dóninn tók upp sprautu þá flýtti ég mér út.
- Mig dreymdi að ég væri giftur þeirri sömu sem ég er,
- hún sagði, ó mér leiðist þetta barnaleysi hér,
- ég gerðist nokkuð bráður og vildi bæta úr því strax
- nei bíddu sagði hún góði við notum pillur nú til dags.
- Gömlu dagana gefðu mér, þá gat ég verið einn með þér,
- nú tæknin geggjuð orðin er gömlu dagana gefðu mér.
- Ó en sá draumur og ég er ánægður með lífið eins og það er.