Upsaströnd
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Upsaströnd eða Ufsaströnd er strandlengja í vestanverðum Eyjafirði á milli Brimnesár við Dalvík í suðri og Ólafsfjarðarmúla í norðri. Ströndin er kennd við býlið Upsir við Brimnesá en byggð á ströndinni er takmörkuð við syðsta hluta hennar en norðar er ekkert undirlendi þverhnípt klettabelti sem ganga útí sjó. Þjóðvegurinn til Ólafsfjarðar liggur um ströndina.