Tónakvartettinn og Grettir Björnsson - Svífur um mar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Svífur um mar | |
Gerð | SG - 542 |
Flytjandi | Tónakvartettinn og Grettir Björnsson |
Gefin út | 1969 |
Tónlistarstefna | Dægurlög |
Útgáfufyrirtæki | SG - hljómplötur |
Tónakvartettinn og Grettir Björnsson er 45 snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1969. Á henni flytja Tónakvartettinn og Grettir Björnsson fjögur lög. Ljósmynd á framhlið tók Þorsteinn Gíslason, skipstjóri.
[breyta] Lagalisti
- Svífur um mar - Lag - texti: Stig Olin — Friðrik A. Friðriksson - Hljóðdæmi
- Kostervalsinn - Lag - texti: D. Hellström — Baldur Pálmason
- Ég kveð - Lag - texti: Sænskt alþýðulag — Iðunn Steinsdóttir
- Stýrimannavalsinn - Lag - texti: Markussen — Iðunn Steinsdóttir
[breyta] Textabrot af bakhlið plötuumslags
Tónakvartettinn frá Húsavík var því, sem nœst óþekktur þegar hann söng inn á sína fyrstu hljómplötu fyrir tœpum þremur árum. En platan vakti athygli á góðum söng kvartettsins og síðan hefur hann sungið víða um land og auk þess verið með sjálfstœða þœtti bœði í útvarpi og sjónvarpi. Á þessari plötu, sem hér er nú á ferðinni hefur Grettir Björnsson, hinn landskunni harmonikuleikari slegizt í hópinn og því ber hljómplatan heitið Tónakvartettinn og Grettir Björnsson. Þar að auki aðstoða við undirleik þeir Árni Scheving á bassa, Birgir Karlsson á gítar og Vilhjálmur Guðjónsson á klarinet. Útsetningar fyrir söng og undirleik gerði Magnús Ingimarsson. Teknir hafa verið fyrir fjórir gamalkunnir „sjómannavalsar" frá Norðurlöndunum. Þó að þetta séu ekki lög í þeim anda, sem þeir félagarnir frá Húsavík hafa tekið til meðferðar á sinni söngskrá, þá bregðast þeir ekki aðdáendum sínum hér, því lögin leiftra af fjöri í meðferð þeirra. | ||
— Svavar Gests
|