Staðalaðstæður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Staðalaðstæður eru þær umhverfisaðstæður sem reynt er að hafa ríkjandi þegar efnafræðilegar tilraunir eru framkvæmdar. Þessar stöðluðu aðstæður eru hitastigið 20°C (293,15 K) og loftþrýstingur 1 loftþyngd = 1013,25 hPa (hektópasköl). Á ensku eru staðalaðstæður táknaðar með skammstöfuninni STP, sem stendur fyrir Standard Temperature and Pressure. Skilgreining staðalaðstæðna er þó reyndar mjög á reiki og er stundum miðað við hitastigið 0°C og stundum 25°C. Einnig er stundum miðað við það hitastig og þrýsting þar sem jafnvægisklofnunarstuðull vatns er 10-14.