Skötufjörður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skötufjörður er 16 km djúpur eyðifjörður sem liggur til suðurs út frá Ísafjarðardjúpi miðju, milli Skarðseyrar og Hvítaness í Súðavíkurhreppi. Við mynni fjarðarins, úti fyrir Hvítanesi, er eyjan Vigur.