Mahathir bin Mohamad
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Mahathir bin Mohamad (f. 10. júlí 1925) var forsætisráðherra í Malasíu frá 1981 til 2003. Í stjórnartíð hans tók efnahagslíf landsins miklum breytingum og framleiðsluiðnaður varð meginatvinnuvegur í stað landbúnaðar. Landið nútímavæddist hratt og lífsgæði jukust. Mahathir stjórnaði landinu í anda þjóðarkapítalisma, þar sem hagsmunir þjóðarinnar og stórfyrirtækja eru sagðir fara saman. Á stjórnartíð hans fór ríkið út í ýmis risaverkefni eins og byggingu Petronasturnanna sem voru hæsta bygging heims til ársins 2003. Jafnframt var hann gagnrýndur fyrir einræðistilburði gagnvart stjórnarandstöðunni.
Fyrirrennari: Hussein Onn |
|
Eftirmaður: Abdullah Ahmad Badawi |