Leira (fljót)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Leira (frönsku: Loire) lengsta fljót í Frakklandi um 1010 km að lengd.
Vatnasvið Leiru er 121.000 km². Hún kemur upp í sunnanverðu Franska miðhálendinu, rennur til norðurs, norðvesturs og vesturs um borgirnar Orléans, Blois, Tours og Nantes og fellur í norðvestanverðan Fetlafjörð (Biskajaflóa). Helstu þverár eru Allier, Vienne og Maine og fljótið tengist m.a. Signu með skurðum. Rennsli Leiru er breytilegt og flóð tíð. Siglingar um Leiru voru áður miklar en með stærri skipum hefur mjög dregið úr þeim.