Lamb
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lamb er afkvæmi sauðkindar. Lambakjöt er algengt hráefni í matargerð.
[breyta] Orð tengd lömbum
- fjallalamb (einnig nefnt graslamb eða fráfærna- eða fráfærulamb) er lamb sem gengur móðurlaust á fjalli.
- gimbrarlamb er kvenkyns lamb, en getur líka merkt lamb undan vetrargamalli á.
- hagalamb (eða hagfæringur) er móðurlaust lamb sem gengur í heimahögum.
- heimalningur (eða innlamb) er móðurlaust lamb sem er alið heima á bæ.
- hundapísl er stundum haft um mjög smávaxið lamb (en einnig börn eða annað ungviði).
- karilamb (stundum einnig kjúklingur) er nýfætt lamb.
- lambadrottning er haft um gimbur sem fæðist fyrst lamba tiltekið vor á bænum.
- lambakóngur er hrútlamb sem fæðist fyrst lamba tiltekið vor á bænum.
- lambhrútskettlingur er agnarsmár lambhrútur.
- lambhrútur er karlkyns lamb.
- lambköttur er smávaxið lamb.
- megða er lítið lamb.
- meltingur er lamb sem hefur drepist í móðurkviði.
- ótyrmi er lamb sem dafnar illa.
- réttalamb er fyrsta lamb sem slátrað er að hausti.
- undanflæmingur er lamb sem hefur flæmst undan móður sinni.
- öræfaköttur (eða öræfakettlingur) er smávaxið lamb sem gengur (lengst) inni á afrétti.