Látraströnd
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Látraströnd er strandlengja í austanverðum Eyjafirði sem nær frá Grenivík í suðri og norður á Gjögurtá. Ströndin dregur nafn sitt af eyðibýlinu Látrum, en ströndin er í dag óbyggð fyrir utan nokkur býli rétt norðan Grenivíkur, þar er lítið sem ekkert undirlendi. Yfir ströndinni gnæfa fjöllin Kaldbakur, Skersgnípa og Einbúi. Látraströnd tilheyrir Grýtubakkahreppi.