Kópavogskirkja
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kópavogskirkja | |
Kópavogur (17. júní 2007) Jóhannes Birgir Jensson | |
Almennt | |
Byggingarár: | 1958-1963 |
Kópavogskirkja á Commons |
Kópavogskirkja er elsta kirkja Kópavogs. Hún er staðsett á Borgarholti í vesturbæ Kópavogs, oft nefnt Kirkjuholt af íbúum.
Grunnur hennar var helgaður 16. ágúst 1958 og hornsteinn lagður 20. nóvember 1959. 16. desember 1963 var kirkjan vígð af Sigurbirni Einarssyni þáverandi biskupi Íslands.
Kirkjan hefur lengi verið tákn Kópavogs og er að finna á merki Kópavogsbæjar.