Jackson Pollock
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Paul Jackson Pollock (28. janúar 1912 – 11. ágúst 1956) var áhrifamikill bandarískur listmálari í bandarísku hreyfingunni sem var kennd við abstrakt expressjónisma, eða þeirrar greinar hennar sem kölluð var action painting, eftir Síðari heimsstyrjöldina. Þekktasta tækni hans fólst í því að láta málningu drjúpa úr pensli á liggjandi léreft. Þetta varð til þess að hann fékk auknefnið „Jack the Dripper“. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu í sýningarsal Peggy Guggenheim í New York árið 1943.
Pollock átti við þunglyndi og áfengissýki að stríða og lést að lokum í bílslysi þar sem hann ók undir áhrifum.