Jórdan
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Margar aðrar ár í heiminum heita eftir Jórdan, sjá aðgreiningarsíðu.
Jórdan (hebreska: נהר הירדן nehar hayarden, arabíska: نهر الأردن nahr al-urdun) er á sem rennur um Sigdalinn mikla. Áin er 251 kílómetri að lengd. Upphaf árinnar er nærri landamærum Líbanon þar sem fjórar ár renna saman og mynda Jórdan sem síðan rennur til Genesaretvatns og þaðan áfram til Dauðahafsins.