Hrafntinna
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- „Hrafntinna“ getur einnig átt við mannsnafnið Hrafntinna.
Hrafntinna er í eldfjalla- og bergfræði gerð náttúrulegs glers sem myndast í eldgosum þegar feldspatshraun kólnar og frýs mjög hratt en kristallast ekki. Hrafntinna er storkuberg og steindarlíki en ekki steind þar sem hún er ekki kristölluð. Hún samanstendur aðallega af kísli (SiO2) eða rúmlega 70% og samsetning hennar er mjög svipuð og í graníti og líparíti. Vegna þess að hrafntinna kristallast ekki geta hvassar hliðar hennar orðið næstum jafn þunnar og sameind.