Hokkaidō
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hokkaidō framburður (japanska: 北海道 Hokkaidō, þýðir bókstaflega: „Norðanhafsvegurinn“), áður þekkt sem Ezo og er það næst stærsta eyjan og stærsta umdæmi við Japan. Tsugaru Sundið aðskilur það frá Honshu, þó að það sé tengt Honshu í gegnum neðansjáver göng sem nefnast Seikan göngin. Stærsta borgin í Hokkaidō er einnig höfuðborg umdæmisins, eða Sapporo.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga Hokkaidō
Fornritið Nihonshoki (sem er oft kallað ferðasögur Japans) er sagt vera fyrsta skráða ritið sem minnist á Hokkaidō. Samkvæmt textanum, leiddi Abe no Hirafu fram stórann sjóher og landgönguher til norðursvæða frá 658 til 660 of komst í samband við Mishihase og Emishi. Einn af þeim stöðum sem var á leið Hirafu var nefndur Watarashima, og er það oft talið vera Hokkaidō nútímans. Hinsvegar hafa margar kenningar verið á sveimi sem draga í efa nákvæmni þessara atburða, svo dæmi má taka staðsetningu Watarashima og sú trú að Emishibúar í Watarishiwa hafi í raun verið forfeður nútíma Ainubúa.
Á meðan á Nara og Heian tímabilunum stóð, versluðu íbúar Hokkaidō gjarnan við Denwa svæðið. Frá miðöldum var fólk frá Hokkaidō kallað Ezo. Um sama tíma varð Hokkaidō kallað Ezochi eða Ezogashime. Ezobúar veiddu sér aðalega til matar bæði á landi og á sjó og öðluðust hrísgrjón og járn í gegnum samskipti við Japani.
[breyta] Landafræði
Eyjan Hokkaidō er staðsett við norður enda Japans nálægt Rússlandi og strandlínur við Japanshaf, Okhrskhaf og Kyrrahaf. Miðja eyjunnar nokkurn fjölda af fjöllum og eldfjalla klettasvæðum. Það eru nokkrar stórar borgir í Hokkaidō svosem Sapporo og Asahikawa í miðju svæðinu og ströng Hakodate snýr að Honshū.
Nokkrar smáar eyjar fylgja umdæmi Hokkaidōs eins og Rishiri, Okushiri, and Rebun.
[breyta] Jarðskjálftavirkni
Jarðskjálfti sem mældist 8 á Richter varð nálægt Hokkaidō 25. september árið 2003 klukkan 19:50:07 (UTC). Árið 1993 mældist annar jarðskjálfti 7,8 á Ricterskala, og oldi hann flóðbylgju (tsunami) sem gereyðilagði Okushiri.
[breyta] Tengt efni
Höfundur manga og anime seríunnar, Full Metal Alchemist, Hiromu Arakawa fæddist í Hokkaidō.