Hlóðir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hlóðir er opið eldstæði hlaðið úr steinum, oft hlaðið þannig að stór steinn er ofan á tveimur öðrum (með bili á milli). Einstakir hlutar hlóða eru öskustó, öskuónn, hlóðahella, eldhella, eldstó, hlóðavik, hlóðasteinar, hlöð og hlöðusteinar. Stundum var skarað var í eldinn með teini (skörungi) og físibelgur hafður við eldstó.