Guðmundur Jónsson (forstöðumaður)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Guðmundur Jónsson einnig þekktur sem Guðmundur í Byrginu (fæddur 19. nóvember 1958)[1] var forstöðumaður Byrgisins um árabil.[2]
[breyta] Um Guðmund
Guðmundur lauk gagnfræðaprófi frá Víghólaskóla, og prófum í múrverki og kjötiðnaði frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hann hefur starfað við múrverk og kjötiðnað, en einnig sem kokkur.[1] Guðmundur er kvæntur Helgu Haraldsdóttur og eiga þau þrjú börn.[1]
Hann var dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands þann 9. maí árið 2008.[3]