Golgiflétta
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Golgiflétta eða frymisflétta er frumulíffæri sem er einskona vinnslu, pökkunar og dreifingarstöð fyrir prótín og fitu. Hún breytir sameindum þessara efna á ýmsan hátt í belgjum fléttunnar og pakkar þeim inn í litlar blöðrur til flutninga (það ferli kallast burður).