Frumsenda
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Frumsendur eru setningar eða frumforsendur sem allar aðrar forsendur innan gefins frumsendukerfis eru afleiður af. Frumsendur eru ósannaðar, en gengið er út frá því að þær séu sannar. Öll stærðfræði í dag byggir á slíkum frumsendum, en sú hefð að byggja stærðfræðilega þekkingu á frumsendum er komin frá heimspekingum Grikklands til forna. Fyrir þann tíma var öll stærðfræði byggð á reynslu, þær formúlur voru notaðar sem reynst höfðu vel. Margar þeirra hafa síðar reynst réttar og hafa verið sannaðar.