Dulvitund
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dulvitund (undirvitund eða undirmeðvitund) í almennri notkun, er hugtak sem fjallar um hugsanir, viðhorf, hvatir, óskir og tilfinningar sem viðkomandi er ekki meðvitaður um.
Ýmsir fræðimenn hafa fjallað um hugtakið á undan Sigmundi Freud, en hann lagði þó mesta áherslu á það. Hann taldi að í dulvitundinni, eða undirmeðvitundinni lægi rót alls vanda falin. Snúast því kenningar hans flestar um þennan mikilvægasta hluta sálarlífsins að hans mati, með einum eða öðrum hætti. Hann hélt því fram að allt sem okkur þætti óþægilegt að hugsa um væri ýtt til hliðar í en þar héldi það samt sem áður áfram að hafa áhrif á hegðun okkar og líðan er þær reyna að brjóta sér leið út úr dulvitundinni, en birtingarform koma í draumförum, mismælum, kækjum og fleira.