Bertálknar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bertálknar | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Notodoris minor
|
||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
|
Bertálknar (Opisthobranchia) eru háþróuð tegund lindýra. Í hefðbundinni dýrafræði voru þeir áður flokkaðir sem undirtegund snigla í fylkingu lindýra en nú er litið á þá sem sérstakan ættbálk.
Þeir hafa langoftast hvorki möttulhol né loku eins og fortálknar. Margar tegundir hafi ekki kuðung eða hann (skelin) er staðsettur inni í sniglunum. Ef þeir hafa kuðung þá er hann mjög lítill ólíkt hjá fortálknum sem hafa stóra og sterka kuðunga. Algengt er að bertálknar hafi ekki tálkn heldur andi gegnum húðina og hafa þeir oft ýmsar fellingar þannig að líkamsyfirborðið verður stærra sem gerir öndun um húð auðveldari. Margar tegundir bertálkna eru skrautlegar og litríkar t.d. sjófiðrildi (e. sea butterfly) og sjóhéri (e. sea hare). Þekktar eru um 4000 tegundir af bertálknum.