See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Anthrax - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Anthrax

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Anthrax er einnig heiti yfir smitsjúkdóminn miltisbrand.

Anthrax er thrash metal-hljómsveit frá New York í Bandaríkjunum. Sveitin gaf út sína fyrstu plötu árið 1984. Anthrax var meðal vinsælli sveita í thrash metal geiranum á 9. áratugnum, og er þekkt fyrir að blanda rappi, þungarokki og fleiru við metal. Sveitin er talin ein af fjórum höfuðsveitum thrash metals ásamt Metallica, Megadeth, og Slayer.

[breyta] Saga

[breyta] Fyrstu árin (1981-1986)

Það voru gítarleikarinn Scott Ian og bassaleikarinn Dan Lilker sem stofnuðu Anthrax árið 1981, en stuttu síðar gengu trommuleikarinn Charlie Benante, gítarleikarinn Dan Spitz og söngvarinn Neil Turbin til liðs við þá Scott og Dan, og þar með var búið að manna sveitina. Þeir félagar fengu síðan samning hjá plötufyrirtækinu Megaforce Records, og fyrsta platan kom út 1984, og hlaut nafnið Fistful of metal. Ári síðar urðu miklar mannabreytingar. Dan Lilker hætti og fór í hljómsveitina Nuclear Assault, en við hlutverki hans tók Frank Bello, frændi Charlies Benante. Sömuleiðis hætti söngvarinn Turbin, og Joey Belladonna var fenginn í hans stað. Belladonna þykir hafa haft mikil áhrif á sveitina, sér í lagi með víðara tónsviði en Turbin.

[breyta] Leiðin til frægðar

Snemma var eftir því tekið að Anthrax-menn höfðu meira en lítið gaman af því að gera tilraunir með ímynd sveitarinnar, og fikta við aðrar tegundir tónlistar í bland við metalinn. Seint á 9. áratugnum skiptu þeir til að mynda um ímynd, hurfu frá hefðbundinni metalímynd og tóku sér það sem þá var kallað brimreiðarstíll (e. surfer). Einnig þóttu þeir duglegri en kollegar sínir í thrash metalnum að koma húmornum að í tónlist sinni.

1987 kom þriðja plata sveitarinnar út, en hún hét Among the living.


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -