See also ebooksgratis.com: no banners, no cookies, totally FREE.

CLASSICISTRANIERI HOME PAGE - YOUTUBE CHANNEL
Privacy Policy Cookie Policy Terms and Conditions
Albus Dumbledore - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Albus Dumbledore

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Albus Percival Wulfric Brian Dumbledore er persóna úr bókunum um Harry Potter eftir J.K. Rowling

Dumbledore er sagður búa yfir undraverðum hæfileikum og krafti.

 
Albus Dumbledore
Hann gerði hluti með sprota sem ég hef aldrei séð áður
 
Albus Dumbledore
 
— – Griselda Marchbanks (Fönixreglan, kafli 31)

Maður sem býr yfir ógurlegri visku, maður sem allir treysta, en hefur samt mikið skopskyn.

Dumbledore er oftast klæddur fjólublárri skikkju, háum skóm með sylgjum og með stóran galdrahatt sem hann skiptir stundum út fyrir eyrnaskjól. Hann er skólastjóri Hogwarts, skóla galdra og seiða. Hann er einnig formaður Wizengamot og Galdramannasambandsins. Honum bauðst að setjast í stól Galdramálaráðherra, en hafnaði boðinu, sem varð til þess að Cornelius Fudge settist þar í hans stað.

Dumbledore er hár og grannur og með langt bogið nef, sem lítur út fyrir að hafa brotnað a.m.k. einu sinni. Hann gengur með hálfmánalöguð gleraugu og er með svo langt silfurlitað skegg, sem einu sinni var rauðbrúnt, að hann bregður því oft undir beltið. Hann er líka með ör fyrir ofan vinstra hnéð sem er fullkomið kort af lestarkerfi Lundúna. Augu hans eru blikandi og blá.

Honum var gefið nafnið Albus Percival Wulfric Brian Dumbledore. Albus kemur úr latínu og þýðir hvítur. Percival var einn af riddurunum við hringborðið og Dumbledore er gamalt enskt orð yfir býflugu. J.K. Rowling höfundur bókanna segist ímynda sér að hann gangi um kastalann hummandi við sjálfan sig.

Albus hefur áhuga á kammertónlist og keilu. Hann á bróðurinn Aberforth, sem er undarlegur gaur og vinnur sennilega á barnum The Hogs Head. Eins og er sagt frá í bókinni The Deathly Hallows (sem hefur ekki enn verið þýdd á íslensku), er Dumbledore sonur Percivals Dumbledore, sem var þekktur muggahatari, og Kendru Dumbledore.

Albus Dumbledore fæddist um það bil 1840 (gróflega reiknað út frá dagsetningum sem eru gefnar, og gefum við okkur það, að hann sé fæddur 1840, hér á eftir í textanum. Þar gæti því oft skeikað svona 5 árum.) og settist því á skólabekk í Hogwarts, skóla galdra og seiða, árið 1851. Hann var flokkaður í Gryffindor heimavistina. Hann útskrifaðist þá 1858.

Dumbledore var mun metnaðargjarnari þegar hann var yngri, og hafði áætlanir um að stjórna samfélagi þar sem galdramenn réðu yfir Muggum, ásamt hinum illa galdramanni Gellert Grindelwald. Eftir að móðir Dumbledores dó, kenndi bróðir hans, Aberforth, honum um dauða hennar og braut á honum nefið. Deilur þeira enduðu með einvígi milli hans, Aberforths og Grindelwalds og endaði með því að álög frá einhverjum þeirra lentu á systur Dumbledores, Ariönu og drápu hana. Grindelwald flúði til meginlands Evrópu og var seinna leitaður uppi af Dumbledore og sigraður. Dumbledore hélt eftir sprota Grindelwalds og gerði hann að sínum eigin.

Albus gerist kennari í ummyndun og tók seinna við skólastjóratitli, eða um 1970.

1945 sigraði hann hinn myrka galdramann Grindelwald.

Dumbledore er helsta stoð og stytta Harrys og trúir honum alltaf. Dumbledore er skemmtilegur karakter, alvitur, en hefur þó alla mannlega eiginleika eins og kímni og hreinskilni.

Dumbledore lést árið 1996 í Hogwartskastala. Hann var myrtur af Severusi Snape töfradrykkjakennara og drápara.


aa - ab - af - ak - als - am - an - ang - ar - arc - as - ast - av - ay - az - ba - bar - bat_smg - bcl - be - be_x_old - bg - bh - bi - bm - bn - bo - bpy - br - bs - bug - bxr - ca - cbk_zam - cdo - ce - ceb - ch - cho - chr - chy - co - cr - crh - cs - csb - cu - cv - cy - da - de - diq - dsb - dv - dz - ee - el - eml - en - eo - es - et - eu - ext - fa - ff - fi - fiu_vro - fj - fo - fr - frp - fur - fy - ga - gan - gd - gl - glk - gn - got - gu - gv - ha - hak - haw - he - hi - hif - ho - hr - hsb - ht - hu - hy - hz - ia - id - ie - ig - ii - ik - ilo - io - is - it - iu - ja - jbo - jv - ka - kaa - kab - kg - ki - kj - kk - kl - km - kn - ko - kr - ks - ksh - ku - kv - kw - ky - la - lad - lb - lbe - lg - li - lij - lmo - ln - lo - lt - lv - map_bms - mdf - mg - mh - mi - mk - ml - mn - mo - mr - mt - mus - my - myv - mzn - na - nah - nap - nds - nds_nl - ne - new - ng - nl - nn - no - nov - nrm - nv - ny - oc - om - or - os - pa - pag - pam - pap - pdc - pi - pih - pl - pms - ps - pt - qu - quality - rm - rmy - rn - ro - roa_rup - roa_tara - ru - rw - sa - sah - sc - scn - sco - sd - se - sg - sh - si - simple - sk - sl - sm - sn - so - sr - srn - ss - st - stq - su - sv - sw - szl - ta - te - tet - tg - th - ti - tk - tl - tlh - tn - to - tpi - tr - ts - tt - tum - tw - ty - udm - ug - uk - ur - uz - ve - vec - vi - vls - vo - wa - war - wo - wuu - xal - xh - yi - yo - za - zea - zh - zh_classical - zh_min_nan - zh_yue - zu -