Spjall:Ósýnilegi bleiki einhyrningurinn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þessi síða, og aðrar í sama dúr, ættu í raun frekar heima á uncylcopedia.com. Þó að greinar í svipuðum dúr (einkahúmor) finnist á 'Alvöru Wikipediu', er þar einnig lagt til að þeim verði eytt, og geri ég það því hér með. --Gakera 16:37, 30 október 2006 (UTC)
- Dregið til baka, fyrst sama grein er til á 'Alvöru Wikipediu' og þar var ákveðið að eyða henni ekki --Gakera 16:39, 30 október 2006 (UTC)
- Það á auðvitað bara að gera sömu kröfur um að þetta efni sé sannreynanlegt og markverðugt eins og hvert annað á Wikipedíu, það er samt augljós hætta á því að svona lagað fái 'afslátt' af kröfunum þar sem það liggur inni á áhugasvæði þess fólks sem líklegt er til þess að vera notendur á Wikipedíu. Það eru fjölmörg efni sem sjálfsagt eiga frekar skilið greinar á 10 mismunandi tungumálum en þetta. Þessi grein er ekki sérlega alfræðileg, hún á að lýsa umfjöllunarefninu á hlutlausan hátt eins og allar aðrar greinar en ekki taka þátt í djókinu eins og er gert með þessum myndum, sjálfsagt þarf að líta yfir textan líka með tilliti til hlutleysis. --Bjarki 21:49, 30 október 2006 (UTC)