Æri Tobbi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Æri Tobbi er skáld frá 18. öld, fæddur árið 1700. Hann hét réttu nafni Þorbjörn Þórðarson. Um ævi hans og búsetu er fátt vitað, en hann virðist hafa dvalist mest sunnanlands og vestan og starfað að járnsmíðum. Talsvert hefur varðveist af undarlegum vísum og kviðlingum eftir hann. Hér er eitt dæmi.
- Vambara þambara þeysingssprettir
- því eru hér svona margir kettir,
- agara gagara yndisgrænum,
- illt er að hafa þá marga á bænum.