Valgerður Sverrisdóttir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Valgerður Sverrisdóttir (VS) | |
Fæðingardagur: | 23. mars 1950 (58 ára) |
Fæðingarstaður: | Lómatjörn í Grýtubakkahreppi |
2. þingmaður Norðausturkjördæmis | |
Flokkur: | Framsóknarflokkurinn |
Nefndir: | Heilbrigðisnefnd, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og Íslandsdeild Öryggis og samvinnustofnunar Evrópu |
Þingsetutímabil | |
1987-1991 | í Norðurl. e. fyrir Framsfl. ✽ |
1991-1995 | í Norðurl. e. fyrir Framsfl. |
1995-2003 | í Norðurl. fyrir Framsfl. ✽ |
2003-2007 | í Norðaust. fyrir Framsfl. ✽ |
2007- | í Norðaust. fyrir Framsfl. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1988-1989 | 2. varaforseti sameinaðs þings |
1992-1995 | 1. varaforseti Alþingis |
1995-1999 | Þingflokksformaður |
1999 | Formaður heilbrigðis- og trygginganefndar |
1995-1999 | Formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs |
1999-2006 | Iðnaðar- og viðskiptaráðherra |
2006-2007 | Utanríkisráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða |
Valgerður Sverrisdóttir er varaformaður Framsóknarflokksins og leiðtogi flokksins og alþingismaður í Norðausturkjördæmi af hans hálfu. Hún er fædd 23. mars 1950, dóttir Sverris bónda Guðmundssonar (1912-1992) á Lómatjörn í Grýtubakkahreppi og konu hans, Jórlaugar Guðrúnar Guðnadóttur (1910-1960). Valgerður er af Lómatjarnarætt. Bóndi hennar er Arvid Kro (f. 1952) og eiga þau þrjár dætur, Önnu Valdísi (f. 1978), Ingunni Agnesi (f. 1982) og Lilju Sólveigu (f. 1989). Hún lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1967.
Valgerður varð varaþingmaður Norðurlandskjördæmis eystra 1984, en hefur setið á Alþingi sem alþingismaður frá árinu 1987, sem þingmaður Norðurlandskjördæmis eystra til 2003, en fyrir Norðausturkjördæmi eftir kjördæmabreytinguna 2003. Veturna 1988-1989 og 1990-1991 var hún 2. varaforseti sameinaðs þings, og veturna 1992-1995 1. varaforseti Alþingis. 1995-1999 var hún þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Hún hefur setið í fjölda þingnefnda fyrir flokkinn.
Valgerður gegndi embætti iðnaðar-og viðskiptaráðherra á árunum 1999-2006 og átti sem slík í útistöðum vegna stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar. Valgerður tók við embætti utanríkisráðherra 15. júní 2006, af Geir H. Haarde, sem varð forsætisráðherra eftir að Halldór Ásgrímsson sagði af sér. Því starfi gegndi hún til 24. maí 2007 þegar Framsóknarflokkurinn hvarf úr ríkisstjórn.
Valgerður Sverrisdóttir var kjörin varaformaður Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi 10. júní 2007.
Fyrirrennari: Geir H. Haarde |
|
Eftirmaður: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir |
|||
Fyrirrennari: Finnur Ingólfsson |
|
Eftirmaður: Jón Sigurðsson |