Týr
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Týr getur einnig átt við karlmannsnafnið Tý
Hluti af greinaflokknum Norræn goðafræði |
Helstu goð |
Æsir: Óðinn, Þór, Baldur, Loki, Höður, Bragi, Mímir Ásynjur: Frigg, Iðunn, Sif Vanir: Njörður, Freyja, Freyr |
Aðrir |
Jötnar: Ýmir, Bor, Bestla, Angurboða, Skaði, Hel, Ægir Skepnur: Auðhumla, Fenrisúlfur, Sleipnir, Miðgarðsormur, Heiðrún, Tanngnjóstur og Tanngrisnir, Huginn og Muninn Aðrir: Askur og Embla; Urður, Verðandi og Skuld; Dvergar, Álfar |
Staðir |
Ásgarður, Miðgarður, Útgarður, Niflheimur, Hel, Bifröst, Askur Yggdrasils |
Rit |
Sæmundaredda, Snorra-Edda, Heimskringla, Gesta Danorum |
Trúfélög |
Íslenska ásatrúarfélagið, Danska ásatrúarfélagið, Ásatrúarfélagið Bifröst, Reykjavíkurgoðorð. |
Týr er einhentur guð hernaðar í norrænni goðafræði, en einnig goð himins og þings. Hann missti höndina þegar æsir plötuðu Fernisúlfinn til að láta binda sig með galdrakeðjunni Gleipni og gera þannig Miðgarð að öruggari stað fyrir mannkynið. Týr er sonur Óðins. Hann var hugprúðastur og djarfastur allra ása og eru af honum margar sagnir. Stríðsmenn ristu galdrastaf hans á skefti sverða sinna og ákölluðu hann áður en þeir lögðu til atlögu í bardaga. Týsdagur var nefndur eftir ásnum.
[breyta] Hvernig Týr missti höndina
Fenrisúlfur var eitt af ógurlegum afkvæmum Loka. Meðan hann var lítill hvolpur höfðu æsir bara gaman að honum en hann stækkaði hratt og varð að risavöxnum úlfi sem ógnaði öllum sem komu nálægt honum og Týr var sá eini sem þorði að fóðra hann. Því hafði einnig verið spáð að Fenri myndi vinna ásum óbætanlegt tjón svo þeir urðu að finna lei til að halda honum í skefjum. Þeir fengu því dverga til að smíða fjötur sem nefndist Gleipnir og gæti haldið úlfinum. Fjöturinn leit sakleysislega út, mjög lítill og þunnur, en var í raun búinn göldrum. Úlfinn grunaði að æsir væru að reyna að plata sig og neitaði að láta binda sig nema einhver ásanna myndi leggja hönd sína í munn hans. Týr var sá eini sem þorði að leggja höndina sína að veði og galt fyrir hugrekki sitt með henni, Fenrisúlfurinn beit af höndina og heitir þar úlfliður hvar höndin hrökk af. Fenrisúlfur stendur síðan bundinn í Jötunheimum til ragnarraka.
[breyta] Ragnarök
Í Ragnarökum berst Týr við hundinn Garm sem var bundinn fyrir Gnipahelli í Hel. Týr er vanur að berjast við úlfkynjaða óvætti og berst hraustlega en er Garmur er sterkari en hann og gleypir hann. Áður en Týr gefur upp öndina í kviði Garms stingur hann sverði sínu í hjarta hundsins innanfrá og drepur hann.