Sigurrós Þorgrímsdóttir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sigurrós Þorgrímsdóttir (fædd 16. apríl 1947) hefur verið bæjarfulltrúi í Kópavogi síðan 1998, er fyrrum Alþingismaður og núverandi formaður Breiðabliks.
Við brotthvarf Gunnars I. Birgissonar af þingi sökum anna í starfi, settist Sigurrós á þing í hans stað 1. október 2005. Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir Alþingiskosningarnar 2007 hafnaði hún neðar á listanum en hún sóttist eftir og dró framboð sitt til baka.
Hún hefur verið formaður skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi síðan 1998.