Morgunmatur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Morgunmatur (eða morgunverður) er máltíð sem er snædd að morgni dags, og er fyrsta máltíð dagsins. Einnig er til nokkuð sem nefnist litli skattur eða skatturinn en það er málsverður sem er borðaður um kl. 9 (á undan venjulegum morgunmat).
[breyta] Samheiti á íslensku
Morgunmatur á sér mörg samheiti á íslensku. Þau eru t.d. árdegisverður, árbítur, frúkostur og morgunskattur. Hið gamla orð dögurður, sem í fornri íslensku var haft um morgunmat, hefur fengið nýja merkingu og verið notað sem þýðing á enska orðinu brunch.
breyta | Máltíðir | ||
Morgunmatur | Dögurður | Hádegismatur | Kvöldmatur |