Notandi:Karl Jóhann
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
[breyta] Gisueppe Scarampella
Ítalski fiðlusmiðurinn Giuseppe Scarampella fæddist í Brescia á Ítalíu árið 1838. Hann var kominn af mikilli ætt fiðlusmiða en faðir hans Paolo Scarampella (1803-1870) fékkst við fiðlusmíði og svo gerðu bræður hans tveir einnig, Angelo Scarampella (1852-1909) og Stefano Scarampella sem hefur átt mestum vinsældum að fagna í seinni tíð. Giuseppe hlaut fyrstu tilsögn í fiðlusmíðum hjá föður sínum en komst síðar í læri hjá Nicoló Bianchi (1804-1880) í París fyrir tilstilli Ítalska fiðlusnillingsins og tónskáldsins Antonio Bazzini (1818-1897)sem var á þeim tíma áberandi í tónlistarlífi Mílanó og Brescia. Samnemendur hans hjá Bianchi voru meðal annarra Eugenio Praga og Riccordo Antoniazzi. Eftir heimkomuna hóf hann störf hjá fiðlusmiðnum Luigi Castellini í Flórens en búseta hans í höfuðborg Toskanahéraðs varð þess valdandi að hann komst í vinfengi við marga af fremstu tónlistarmönnum Ítalíu auk þess sem honum gáfust tækifæri til að gaumgæfa hljóðfæri eldri meistara. Bróðir hans, Stefano Scarampella hlaut nokkra tilsögn í fiðlusmíði frá eldri bróður sínum, Giuseppe en síðar meir varð hann einn mestur fiðlusmiða Ítalíu. Hann stofnsetti smíðaverkstæði í Brescia árið 1881 en fluttist fimm árum síðar til Mílanó þar sem hann bjó til æviloka. Stefano varð mun afkastameiri en Giuseppe var og fiðlur hans og knéfiðlur eru sannkölluð meistaraverk. Stefano var mjög litríkur persónuleiki. Hans safnaði uppstoppuðum fuglum, hafði yndi af stangveiði. Stefano var þó hvorki þekktur né efnaður í lifanda lífi. Þrátt fyrir það var gæddur miklum persónutöfrum síðustu æviárin. Fjölmargir fiðlusmiðir litu á hann sem læriföður sinn þó aðeins einn þeirra, Geatano Gadda hafi verið í eiginlegulæri hjá honum.
Hljóðfæri Giuseppes Scarampella hafa dökkan og kryddaðan tón eins og títt er um ítölsk hljóðfæri, en þykja þó nokkuð lokuð. Eitt verka Giuseppes er til á Íslandi en það er knéfiðla, smíðuð í Flórens árið 1883. Hún er í eigu Karls Jóhanns Bjarnasonar sellóleikara.
Stefano Scarampella [[1]] Brescia árið 1852 [[2]] Scarampella Fiðla (framhlið)[[3]] Scarampella Fiðla (bakhlið) [[4]] Scarampella Fiðla (háls) [[5]]