Kampanía
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kampanía (ítalska: Regione Campania) er hérað á Suður-Ítalíu sem markast af Latíum og Mólíse í norðri, Apúlíu í austri og Basilíkata í suðri með strönd að Tyrrenahafi í vestri. Höfuðstaður héraðsins er Napólí. Íbúafjöldi er 5,7 milljónir. Í Kampaníu eru meðal annars eldfjallið Vesúvíus og eyjan Kaprí.
[breyta] Sýslur (province)
- Avellino (119 sveitarfélög)
- Benevento (78 sveitarfélög)
- Caserta (104 sveitarfélög)
- Napoli (92 sveitarfélög)
- Salerno (158 sveitarfélög)
Héruð Ítalíu | |
---|---|
Abrútsi · Apúlía · Basilíkata · Emilía-Rómanja · Fjallaland · Kalabría · Kampanía · Langbarðaland · Latíum · Lígúría · Marke · Mólíse · Toskana · Úmbría · Venetó | |
Ágústudalur · Friúlí · Sardinía · Sikiley · Trentínó-Suður-Týról |