Junichiro Koizumi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Junichiro Koizumi (f. 8. janúar 1942) var forsætisráðherra Japans frá 2001 til 2006 og formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins. Hann studdi innrásina í Írak, en er annars kunnur af þeim verkum sínum að borga sektir Japans og fyrir að hafa staðið fyrir einkavæðingu á japönsku Póstþjónustunni. Árið 2005 vann hann einn stæsta sigur frjálslyndra lýðræðissinna í sögu Japans eða fékk flokkur hans 38,2% atkvæði. Einnig vakti hann mikla atygli þegar hann sendi japanska varnarlyðið til Íraks og opinber heimsókn hans til Yasukuni Shrine.
Vinsældir Koizumi voru ávallt miklar vegna fallegrar tungu hans og hversu litríka fortíð hann átti, í júní 2001 naut hann stuðnings 85% Japana en 7% voru á móti honum. Viðurnefni hans var ljónshjarta vegna hárgreiðslu hans.
Koizumi lísti því yfir að hann mundi segja af sér 2006 og hann mundi ekki velja sjálfur sinn eftirmann fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn heldur mundi hann vera kosinn. Shinzō Abe tók við formensku flokksins 20. september og sem forsætisráðherra 26. september 2006.
Fyrirrennari: Yoshiro Mori |
|
Eftirmaður: Shinzō Abe |