Jane Austen
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jane Austen (16. desember 1775 – 18. júlí 1817) var enskur rithöfundur, fræg fyrir sögur sínar um mið- og yfirstéttarkonur. Frægasta verk hennar er Hroki og hleypidómar (Pride and Prejudice) sem kom fyrst út 1813. Hún gaf verk sín út nafnlaust og þau vöktu töluverða athygli, en nafnleysi hennar gerði það að verkum að hún var ekki í tengslum við aðra rithöfunda. Þótt hún skrifaði á rómantíska tímanum var hún ekki rómantíker, heldur einkennast verk hennar af skynsemishyggju og hún beitir háði gegn tilfinningasemi. Hún var fyrst upphafin sem einn mesti rithöfundur á enska tungu nokkrum áratugum eftir dauða sinn, eða á Viktoríutímabilinu.
[breyta] Tenglar