Gordon Brown
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rt. Hon. Gordon Brown | |
|
|
---|---|
Enn í embætti | |
Stjórnartíð hóf 27. júní 2007 |
|
|
|
Fæddur | 20. febrúar 1951 |
Þjóðerni | Skoskur |
Stjórnmálaflokkur | Verkamannaflokkur Bretlands |
Maki | Sarah Brown |
Börn | John og James Fraser |
Bústaður | 10 Downing Street |
Háskóli | Edinborgarháskóli |
Atvinna | Stjórnmálamaður |
Starf | Fyrirlesari og blaðamaður |
Trúarbrögð | Skoska þjóðkirkjan |
James Gordon Brown (fæddur í Glasgow í Skotlandi, 20. febrúar 1951) er formaður Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands frá og með 27. júní 2007. Gordon var fjármálaráðherra Bretlands á árunum 1997-2007 sem er lengsta tímabilið sem sami maðurinn hefur setið í því embætti frá því að Nicholas Vansittart gegndi því á árunum 1812-23. Brown hefur átt í löngu samstarfi við fyrirrennara sinn, Tony Blair, og eru sögusagnir á kreiki um að þeir hafi gert með sér samkomulag um að deila með sér embættum.[1]
[breyta] Ævi
Foreldrar Gordons voru John Ebenezer Brown, prestur Skosku þjóðkirkjunnar og Elizabeth. Gordon á tvo bræður, John og Andrew. Fjölskyldan bjó í Kirkcaldy í Skotlandi, þar sem Gordon hlaut grunnmenntun sína. Eftir að hafa útskrifast frá menntaskóla þar, tveimur árum á undan jafnöldrum sínum, gekk hann í Háskólann í Edinborg þar sem hann nam sagnfræði. Hann lauk masters gráðu með hæstu einkunn árið 1972 og doktors gráðu 1982 þar sem hann fjallaði um þróun breska Verkamannaflokksins á árunum 1918-29.
Gordon var kosinn rektor Háskólans í Edinborg árið 1972, á meðan hann var enn við nám þar. Hann var rektor skólans til 1975 en þá hóf hann kennslu í stjórnmálafræði við Tækniháskólann í Glasgow, þar sem hann kenndi til 1980. Hann bauð sig fram til þingkosninga árið 1979 en tapaði gegn Michael Ancram, frambjóðanda Íhaldsflokksins. Þá vann hann sem fréttamaður hjá Skoska ríkissjónvarpinu fram að 1983 en þá náði hann á þing.
[breyta] Tilvísanir
- ↑ Michael White (6. júní 2003). The guarantee which came to dominate new Labour politics for a decade (enska). Guardian Unlimited. Skoðað 2. júlí, 2007.
[breyta] Heimild
- Greinin „Gordon Brown“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 2. júlí 2007.
Fyrirrennari: Tony Blair |
|
Eftirmaður: enn í embætti |