Capoeira
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Capoeira [ka.pu.ˈej.ɾɐ] er brasilískur bardagadans, upprunalega kominn frá afrískum sebradansi kallaður „NiGolo“. Hann var dansaður á nýlendutímabilinu í Brasilíu af þrælum frá Afríku og í honum eru hreyfingar sem eiga mikið sameiginlegt með fimleikum. Capoeira er leikinn við annan Capoeirista í hring „Roda“ með tilheyrandi tónlist og söngvum.