Brennisóley
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Brennisóley | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Brennisóley (Ranunculus acris)
|
||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
|
||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||
Ranunculus acris |
Brennisóley (fræðiheiti: Ranunculus acris) er blóm af sóleyjaætt sem finnst út um allt í Evrópu, Asíu, Afríku og Norður-Ameríku, meðal annars á Grænlandi og Íslandi. Brennisóley verður 30-100 cm á hæð. Hún vex í graslendi, á engjum og í fjallshlíðum í allt að 2.400 metra hæð.
Blómið er gult með fimm krónublöð. Safi jurtarinnar inniheldur ranúnkúlín sem breytist í eiturefnið prótó-anemónín við vatnsrof. Þetta veldur því að grasbítar á beit forðast hana en geta hins vegar étið hana sé hún þurrkuð (t.d. við slátt og verkun í hey). Langtímasnerting getur valdið roða og neysla bólgum í maga.
[breyta] Á Íslandi
Á Íslandi blómgast brennisóleyjar í maí til júní[1] og finnast um nánast allt land[2] (m.a. í Surtsey[3]), í fjalllendi finnst hún oft upp í 900 metra hæð en er hæst fundin í 1100 metra hæð á Litlahnjúk við Svarfaðardal.
[breyta] Heimildir
- ↑ Brennisóley. Skoðað 6. ágúst, 2005.
- ↑ Dreifing brennisóleyjar. Skoðað 6. ágúst, 2005.
- ↑ Gróður í Surtsey. Skoðað 6. ágúst, 2005.