Anton Tsjekhov
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Anton Pavlovítsj Tsjekhov (rússneska: Антон Павлович Чехов) (17. janúar 1860 – 2. júlí 1904) var rússneskt leikskáld og smásagnahöfundur. Leikrit hans höfðu mikil áhrif á leikhúsið í upphafi 20. aldar en hans er einnig minnst fyrir framúrskarandi smásögur, mörg hundruð talsins, sem hann skrifaði alla ævina.
Tsjekhov fæddist í héraðinu Taganrog við Asóvshaf. Hann var af alþýðufólki og byrjaði að skrifa sem unglingur. Hann fékk inngöngu í Ríkisháskólann í Moskvu þar sem hann lærði læknisfræði. Í Moskvu fór hann að gefa út smásögur í bókmenntatímaritum, oft undir dulnefnum. Hann varð brátt nokkuð þekktur en leit lengst af á skrifin sem áhugamál. 1887 fékk hann hin eftirsóttu Púskínverðlaun fyrir smásagnasafnið Rökkur.
Fjögur helstu leikrit Tsjekhovs, Mávurinn, Vanja frændi, Þrjár systur og Kirsuberjagarðurinn, voru skrifuð í anda natúralismans og voru sett upp kringum aldamótin 1900 í Listaleikhúsi Moskvu (Московский художественный академический театр им. Чехова). Leikhúsið var stofnað af Konstantín Stanislavskíj 1897 sem þar þróaði Stanislavskíj-aðferðina sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á leiklist alla 20. öldina.
[breyta] Tenglar