Albert Camus
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar |
|
---|---|
Nafn: | Albert Camus |
Fædd/ur: | 7. eða 8. nóvember 1913 |
Dáin/n: | 4. janúar 1960 (46 ára) |
Skóli/hefð: | Meginlandsheimspeki |
Helstu ritverk: | Útlendingurinn |
Helstu viðfangsefni: | Tilvistarstefna |
Áhrifavaldar: | Friedrich Nietzsche, Jean-Paul Sartre, Victor Hugo, George Orwell |
Hafði áhrif á: | Jean-Paul Sartre |
Albert Camus (7. eða 8. nóvember 1913 – 4. janúar 1960) var franskur höfundur og heimspekingur, hann er oft kenndur við tilvistarstefnuna þótt svo að hafa kallað sjálfan sig fáránleikasinna. Hann var næst yngsti nóbelsverðlaunahafi fyrir bókmenntir þegar hann hlaut þau árið 1957 (áður var sá yngsti Rudyard Kipling). Hann var einnig skammlífastur af handhöfum nóbelsverðlauna fyrir bókmenntir og er það enn í dag.
Efnisyfirlit |
[breyta] Æviágrip
Camus fæddist við sára fátækt í Alsír og missti hann föður sinn í fyrri heimsstyrjöldinni. Með aðstoð leiðbeinanda að nafni Louis Germain komst hann í Háskóla Alsír. Hann greindist snemma með berkla og gat af þeim sökum ekki fengið að kenna eins og hann óskaði, einnig varð hann að hætta íþróttaiðkun sinni sem hann hafði stundað af kappi. Hann útskrifaðist með BA í heimspeki og því sem samsvarar M.A. í heimspeki með lokaritgerð um Plótínos.
Í síðari heimsstyrjöldinni tók hann fyrst afstöðu sem friðarsinni (hann hafði ekki verið kveðinn í herinn vegna berkla), en eftir að verða vitni af aftöku Gabriel Peri, snéri hann blaðinu við og gekk í frönsku mótspyrnuna. Á stríðsárunum tók hann þátt í útgáfu áróðursrits að nafni Combat og gaf út tvær af sínum frægustu bókum, Le Mythe de Sisyphe og L'Étranger.
Hann dó árið 1960 í bílárekstri nálægt Sens. Hann lét eftir sig tvíburadætur að nafni Catherine and Jean, þær eiga höfundarrétt af verkum hans enn í dag.
[breyta] Þekktustu verk
[breyta] Skáldsögur
- Útlendingurinn (L'Étranger) (1942)
- Plágan (La Peste) (1947)
- Fallið (La Chute) (1956)
- A Happy Death (La Mort heureuse) (eldri útgáfa af Útlendingurinn, útgefið eftir dauða árið 1970)
- Fremmandamaðurin (Le premier homme) (óklárað rit, útgefið eftir dauða árið 1995)
[breyta] Smásögur
- Exile and the Kingdom (L'exil et le royaume) (1957)
- Gesturinn
[breyta] Óskálduð ritverk
- Betwixt and Between (L'envers et l'endroit) (1937)
- Neither Victim Nor Executioner (Combat) (1946)
- The Myth of Sisyphus (Le Mythe de Sisyphe) (1942)
- The Rebel (L'Homme révolté) (1951)
- Notebooks 1935-1942 (Carnets, mai 1935 -- fevrier 1942) (1962)
- Notebooks 1943-1951 (1965)
[breyta] Leikrit
- Caligula (performed 1945, written 1938)
- The Misunderstanding (Le Malentendu) (1944)
- State of Siege (L'État de siège) (1948)
- The Just Assassins (Les Justes) (1949)
[breyta] Safnverk
- Youthful Writings
- Resistance, Rebellion, and Death (1961 - Safn ritgerða valin af Comte)
[breyta] Kvikmyndir
- Luchino Visconti kvikmyndaði Útlendinginn árið 1967, einn af leikurunum var Marcello Mastroianni.
- Luis Puenzo og Felix Monti kvikmynduðu nútímavædda útgáfu af Plágunni árið 1991. Einn af leikurunum var William Hurt.
[breyta] Tenglar
- Camus; 1. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1964
- Camus; 2. grein í Lesbók Morgunblaðsins 1964
- Bókmenntaverðlaun Nóbels (1957)
- Tilvistarstefnan og Albert Camus
- Um „L'Homme révolté“ hjá Salon.com
- The Absurd Hero & The Ruthless Critic
- "Accidental Friends" the story of the Camus-Sartre friendship and very public breakup
- http://www.romanistik.info/camus.html
- Camus's Choice: An Existential (Humanist) Antiplot
- Interview with daughter Catherine - 3AM
- Another interview with daughter Catherine - Spike
- The Myth of Sysiphus
- Biography and quotes of Albert Camus
- Albert Camus Society UK