Thomas Mann
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Paul Thomas Mann (6. júní 1875 — 12. ágúst 1955) var þýskur rithöfundur sem einkum er þekktur fyrir langar skáldsögur sem innihalda greiningu og háðsádeilu á þýskt samfélag. Hann bjó lengst af í München en flutti til Bandaríkjanna 1933 þar sem hann kenndi við Princeton-háskóla. Árið 1952 flutti hann til Kilchberg í Sviss og bjó þar til dauðadags. Hann fékk Nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 1929.
[breyta] Tenglar