Rafbassi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rafbassi eða bassagítar er rafmagnsstrengjahljóðfæri. Rafmagnsbassi hefur oftast 4 strengi en 5 og 6 strengja rafbassar eru ekki sjaldséðir. Oftast eru stregir á rafmagnsbassa stilltir í E, A, D og G (áttund neðar en fjórir dýpstu strengir gítars) en margir bassaleikarar kjósa að að stilla bassann sinn öðruvísi. Rafbassar eru yfirleitt með þverböndum þó bandalausir rafbassar séu einnig til.
Á búki rafbassa eu pikköppar sem gerðir eru úr seglum sem nema titring strengjanna þegar slegið er á þá. Utan um seglanna er vafin spóla sem umbreytir hreyfiorku seglanna í rafstraum. Snúra er tengd frá rafbassa yfir í magnara sem magnar upp rafmerkið.