Fláning
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fláning er það að fjarlægja húð (skinn) af dýri með egghvössu áhaldi. Úr dýraskinnum er m.a. unninn fatnaður.
Hamfletting er þegar skinn (eða para) er fjarlægt af dýrinu með hnífi eða egghvössu áhaldi. Smáfuglar, t.d. rjúpur eru oftast hamflettar, en einnig er talað um að hamfletta sjávardýr með hvelju eins og t.d. hvali eða rauðmaga.
Roðfletting er fláning fisks. Hún er framkvæmd með því að smeygja hnífi undir roðið og draga um leið í það til að losa það frá fiskinum. Í frystihúsum er það oftast gert með roðflettivél. Roðflettingu má ekki rugla saman við flökun, þ.e.a.s. það að flaka fisk eða slægingu, þ.e.a.s. það að slægja fisk.