Finngálkn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Finngálkn er furðusagnakvikindi, maður að ofan en dýr að neðan. Finngálkn er einnig haft um afkvæmi tófu og kattar. Innan risaeðlufræða er finngálkn einnig haft um hávaxna og hálslanga risaeðlu (Brachiosaurus) sem var úr hópi graseðla.
[breyta] Afkvæmi tófu og kattar
Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar segir á einum stað:
- Finngálkn er það dýr kallað, sem köttur og tófa geta saman. Er það grimmt mjög, og öllum vargi skaðlegra fyrir sauðfé manna, og skotharðast allra dýra. Vinnur engin kúla á Finngálknið, og verður það ekki skotið nema með silfurhnapp eða silfurkúlu. Það er styggt mjög og ákaflega frátt á fæti.
[breyta] Tengt efni
- Finngálkn, íslensk hljómsveit.
- Sfinx er finngálkn úr arfsögnum Egypta með ljónsbúk og höfuð manns.
[breyta] Tenglar
- Finngálknað; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1993
- Finngálkn í íslenskri þjóðtrú og annarstaðar; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1988
- Hvað er finngálkn sem minnst er á í Njáls sögu?; af Vísindavefnum