Dagur heilags Patreks
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dagur heilags Patreks (írska: Lá ’le Pádraig eða Lá Fhéile Pádraig, enska: St. Patrick’s Day eða í daglegu tali (St.) Paddy’s Day) er hátíð haldin 17. mars til þess að minnast Heilags Patreks, einum af verndardýrlingum Írlands.
Hátíðin er þjóðhátíðardagur Írlands. Hún er almennur frídagur á Norður-Írlandi og er helgidagur á Írlandi, Montserrat og Nýfundnalandi og Labrador í Kanada. Annarstaðar í Kanada, Bretlandi, Ástralíu, Bandaríkjum og Nýja-Sjálandi er hún haldin víða en ekki sem opinber hátíð.