Epli
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Epli er ávöxtur sem vex á trjám. Þau eru ýmist með gult, grænt eða rautt hýði eða þá að litur þess er blanda af þessum litum.
Epli koma við sögu í ævintýrum, m.a. sögunni af Mjallhvíti þar sem vonda stjúpan gaf Mjallhvíti eitrað epli. Einnig er barkakýlið sem skagar út úr hálsi karla stundum kallað Adamsepli og á það rætur í þjóðsagnakenndri síðari tíma skýringu á fyrstu Mósebók og brottrekstri Adams og Evu úr aldingarðinum Eden. Í henni er sagt að skilningstréð hafi verið eplatré og eplið hafi staðið í Adam þegar hann beit í það í óþökk guðs.