Eineygði kötturinn Kisi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eineygði kötturinn Kisi er myndasögupersóna eftir Hugleik Dagsson. Tvær kisabækur hafa komið út. Eineygði kötturinn Kisi og hnakkarnir og Eineygði kötturinn Kisi og leyndarmálið. Kisi Er hvítur fress sem býr í Öskjuhlíðinni í Reykjavík. Kisi er manngert dýr líkt og Andrés önd eða Villi spæta. Hann er viðkvæmur naívisti sem lætur þó skína í tennurnar þegar honum er ofboðið. Hann elskar Gilmore Girls og músakjöt með vindaloo-sósu.
[breyta] Kata og Skúli
Bestu vinir Kisa eru Kata kanína og Skúli skjaldbaka. Kata er grunnhyggin og lauslát pæja sem nýtur þess að drekka rauðvín og skemmta sér. Hún er einnig afar fær dansari.
Skúli er dópsali og er sjálfur háður kannabisreykingum. Hann býr yfir snilligáfu í efnafræði og er mjög hugvitsamur.