Dyr
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dyr eru manngengt op inn í hús eða milli herbergja, oftast með umbúnaði til að hurð geti fallið fyrir. Dyrum má ekki rugla saman við hurð, en hurð er flekinn sem fellur að dyrum. Enska orðið door getur aftur á móti þýtt hvortveggja, hurð og dyr, en ekki í íslensku. Orðið dyr [1] eru fleirtöluorð.