Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Félagssvæði: | Ísland |
Fjöldi félaga: | Um 19.000 |
Formaður: | Ögmundur Jónasson |
Varaformaður: | (1.) Árni Stefán Jónsson
(2.) Elín Björg Jónsdóttir |
Ritari: | Þuríður Einarsdóttir |
Gjaldkeri: | Garðar Hilmarsson |
Framkvæmdastjóri: | Helga Jónsdóttir |
Aðrir stjórnarmenn: |
|
Vefslóð: | http://www.bsrb.is/ |
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja eða BSRB eru samtök launafólks í opinbera geiranum (ríkis og sveitarfélaga, auk fyrirtækja í almannaþjónustu) á Íslandi. Að BSRB standa 28 aðildarfélög og er samanlagður fjöldi félaga um 19 þúsund. Um 70% félaga eru konur. Formaður BSRB er Ögmundur Jónasson alþingismaður.
[breyta] Aðildarfélög
- Félag flugmála starfsmanna ríkisins
- Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
- Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi
- Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
- Félag starfsmanna stjórnarráðsins
- KJÖLUR stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
- Landssamband lögreglumanna
- Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
- Póstmannafélag Íslands
- SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu (heimasíða)
- Sjúkraliðafélag Íslands
- SLRB - Samband lífeyrisþega ríkis og bæja
- Starfsmannafélag Akraness
- Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu
- Starfsmannafélag Fjarðabyggðar
- Starfsmannafélag Garðabæjar
- Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
- Starfsmannafélag Húsavíkur
- Starfsmannafélag Kópavogs
- Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
- Starfsmannafélag Ólafsfjarðar
- Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar
- Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins
- Starfsmannafélag Seltjarnarness
- Starfsmannafélag Skagafjarðar
- Starfsmannafélag Suðurnesja
- Starfsmannafélag Sveitarfélagsins Árborgar
- Starfsmannafélag Vestmannaeyja
- Tollvarðafélag Íslands
[breyta] Saga BSRB
Samtökin voru stofnuð 14. febrúar árið 1942 og voru þá félagar 1550 talsins. Aðildarfélögin við stofnunina voru 14 talsins, og fór stofnfundurinn fram á kennarastofu Austurbæjarskólans. Fyrsti formaðurinn var Sigurður Thorlacius.
Ári eftir stofnunina voru fyrstu lögin um lífeyrissjóði sett og þótt það góður árangur svo ungra samtaka. Af öðrum áföngum í baráttunni fyrir kjararéttindum má nefna setningu laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna 1954, samið var um verkfallsrétt 1976 og var hann nýttur til allsherjarverkfalla 1977 og 1984. Núverandi formaður BSRB er Ögmundur Jónasson alþingismaður.