Öreindafræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Öreindafræði eða háorkueðlisfræði er grein innan eðlisfræðinnar, sem reynir að lýsa eiginleikum og víxlverkun efnis og geislunar. Staðallíkanið lýsir öreindum og víxlverkun þeirra. Einnig er fjallað um grunnkraftana fjóra: sterka og veika kjarnakraftinn, rafsegulkraftinn og þyngdarkraftinn.
Við rannsóknir í öreindafræði eru notaðir orkumiklir eindahraðlar, sem skjóta samstæðum öreindum, t.d. róteindum af milu afli þannig að þær rekast hverjar á aðra. Við áreksturinn myndast aragrúi annarra einda sem eru rannsakaðar nákvæmlega til að fá vitneskju um innri gerð eindanna sem rákust saman.
CERN er stærsta öreindarannskónastofa í heimi og er rétt norðvestur af Genf í Sviss á landamærum Frakklands og Sviss.